30 dages returret

Varan sem þú pantaðir var ekki til - algengar spurningar

Varan var ekki til, hvað gerist nú?

Við sendum þér inneign fyrir vörunum sem ekki voru til á netfangið þitt og sendum afganginn af pöntuninni af stað við fyrsta tækifæri. Ef þú vilt frekar fá endurgreiðslu þá geturðu sent tölvupóst á netverslun@lindex.is með þínum upplýsingum. Ef greitt var með debetkorti eða millifærslu þarf að láta kennitölu og reikningsnúmer fylgja með í póstinum. 

Get ég fengið aðra vöru í staðinn í sömu sendingu?

Ef þú nærð að panta áður en sendingin fer af stað og bætir við athugasemd um að láta þetta fylgja með pöntunarnúmerinu (sjá pöntunarnúmer í staðfestingar tölvupósti) þá látum við nýju vöruna fylgja með.

Ef þú ert að sækja vöruna í verslun þá þarftu ekki að taka fram pöntunarnúmerið, heldur sækir bara þegar báðar pantanir hafa skilað sér.

Af hverju er varan ekki lengur til?

Við gerum okkar besta til að tryggja að birgðastaðan á vefsíðunni sé sem réttust. Það gerum við m.a. með því að fara reglulega í gegnum allar birgðir og telja hverja einustu vöru. Í sumum tilfellum getur þó verið erfitt að koma algerlega í veg fyrir að vörur vanti. Til dæmis gæti verið að varan hafi verið send frá lagernum okkar til verslunar á sama tíma og þú pantaðir hana á netinu. Á miklum álagstímum hefur það líka gerst að tveir einstaklingar hafi keypt sömu vöruna á nákvæmlega sama tíma á vefsíðunni og því hafa báðar pantanir farið í gegn þó aðeins eitt stykki væri til.